| um mig |
| í neyð | tampax o.b. | dót | sms símaskráin webmonkey þjóðskráin | vinir & vandamenn | ágúst óli gunnarr | stelpublogg | EVA | bloggerar | ágúst bjorgvin vinur hans bjorgvins, geir tóti rokk | gamalt blogg | allt í einum graut |
20.5.00
Tóti Rokk - the legend is back! Jæja, aðeins tvö próf eftir. Ég er satt að segja komin með soldið leit á þessum prófum! Ég vinn allar helgar á bókasafninu og les síðan það sem eftir er af helgunum undir próf. Virka daga er ég lesandi og það eina social sem ég geri er að skreppa í mat til tengdó eða Heiðar systur minnar. En að merkilegri hlutum! Tóti Rokk aka Þórarinn Freysson er kominn á netið! Þessi fyrrum nágranni minn og skólafélagi, meðlimur í Sixties og fleiri grúppum!!! Þessi maður var virkilegt goð í götunni minni, með síða hárið í leðurgallanum og með gítar/bassa að mig minnir röltandi útí bílskúr að æfa með e-i hljómsveit! mér finnst að hann eigi að safna hári aftur (þ.e.a.s meira hári!) Fyndið að fólk af Háaleitisbrautinni (og Álftamýrarskóla) sé svona virkt í blogginu! 11:16 ![]() 18.5.00
Ágætis afþreyting Ég var að detta niður á alveg súper síðu.Hún gengur út á það að kála karakternum sem þú þolir ekki í uppáhaldssjónvarpsþættinum þínum. Ég er kannski bara svona sick en mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Sérstaklega að komast að því að það er ekki bara ég sem hata Ally í Ally Mcbeal! 20:54 ![]() Skilaboð til Geirs eða Björgvins (og annarra uppló kennara!) Ég vona að þið gerið ráð fyrir því að 5-B og 5-C vita ekki rass um Linux né telnet né Júhúúú (????). Við höfðum kennara sem eyddi 2 mánuðum í að "kenna" okkur á Microsoft Outlook for christ's sake!!!! Þannig að við erum nokkurn veginn að skíta á okkur í þessu efni og þar sem þið semjið prófið fannst mér svona að þið ættuð að fá að vita þetta! Kennslan sem við fengum í þessu fór fram þannig: Eiginmaður kennarans kom, talaði í gemsann sinn 70% af tímanum og röflaði óskipulega inn á milli! Ein spurning: Samræma kennararnir sig ekki eða neitaði Ragnhildur einfaldlega að tala við ykkur??????? Kíkið þið endilega á heimasvæði 5-B í upplýsingafræði og gáið hversu mikið þið finnið um Telnet eða Linux nú eða Júhúúúu.... 17:25 ![]() Hilfe! Hilfe! Getur ekki einhver sagt okkur hvaða leitarvélar Highway og Magellan eru??? 12:52 ![]() 17.5.00
![]() 19:57 ![]() [ hljóðfræði ] ...Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera. Við lærum þar að...Núna er ekki gaman að vera í skólanum. Próf í hljóðfræði og bókmenntasögu. Ljóðin eru svosem allt í lagi en hljóðfræðin er svoo leiðinleg. Ég bara varð að kíkja aðeins á netið áður en ég hæfi yfirlestur nr. 2 á Rótum eftir Bjarna Ólafs o.fl. og Slitur úr íslenskri bókmenntasögu eftir Viðar. Í gær fékk ég alveg brilljant hugmynd. Ég ætla að hafa svona Dallas-horn hérna. Endurvekja glæsta tíma þegar Dallas var töff og menn misstu ekki úr þátt. Ég var 3-4 ára og ég horfði frekar oft á Dallas en missti af þessum kúltúr þannig að núna verður úr því bætt. Það verður svona episode-guide, svo ef ég er ekki með einhvern þátt þá getið þið bara sent mér hann í pósti. Síðan verður líka fjallað um hvern og einn leikara, svona character-guide...tchüß! 10:08 ![]() 16.5.00
Íslandsklukkan Fyrir 5.bekkinga Verzlunarskóla Íslands sem eru að fara í íslenskupróf þá eru hér glósur úr þessu mikla riti hans Halldórs Laxness. 14:57 ![]() 15.5.00
...er allt að verða vitlaust eða bara ég? OK, fyrst geri ég mig að algjöru fífli og segi að síðan mín sé týnd. Svo kíki ég á hana sekúndu seinna og allt komið í lag! Ég er ekki lítið búin að vera pirra mig yfir þessu. Ok, þá þarf enginn að breyta slóðinni á síðuna mína fyrst þetta er allt saman komið í lag. Ég æ'llega búin að skjóta mig í fótinn ma'r! 16:10 ![]() Bloggvandræði! Tripod ekki alveg að standa sig núna! Allt í einu hef ég ekki aðgang að mínum account né getur nokkur lifandi maður skoðað síðuna mína!!! Ég verð bara að vona að þetta reddist einhvern veginn! Að Ágúst, Björgvin, Eva og fleira gott fólk breyti slóðinni á síðuna mína... 15:54 ![]() 14.5.00
sameinaðar stöndum vér... Ég var sjálfri mér til ævarandi háðungar og skammar með því að setja ekki hana Evu á slóðalistann minn! Þá var bara að bregðast við í einum grænum og tileinka Evu heilan dálk (eins og ég fékk hjá henni!) Ávallt viðbúin! Þegar maður er titlaður mesta krútt GB þá er eins gott að standa undir nafni! Takk! En í sambandi við Júróvisjón (nb. ég ætla ekki að vera með tengingu á þessa keppni þar sem allir eru með tengingu og keppnin hvort eð er búin) þá veit ég bara ekki hvað ég á að halda! Tveir Danir að tralla uppi á sviði? Það er það eina sem ég ætla að segja um þessa keppni, Sådan er livet! 17:23 ![]() |