--->
. : the pink lady blogs : .
    | a tribute to tampons version 3.0 |


 ?/b>
•um mig
•e-mail
•?nj?
 gestab?b>
•skrifa
•lesa
 stelpublogg
•inga hrund
 daily babe-test score:
• 66,7%
 links'R'us
•nagportal
•Bendt
 ?d
•breast chronicles
•accidental
 golden oldies
•gamalt







sigga
2001
 ruglumbull
21.3.01
BBQ
Hversu scary er að slá inn leitarorðið "muslims" á www.imdb.com og einu niðurstöðurnar eru: BBQ Muslims!!!!!

15:24// sigga | #

20.3.01

Fordómar
Ég er í vinnunni núna og meðal þess sem ég þarf að gera, er að ganga í stofur og slökkva ljósin, loka gluggum og slökkva á tölvum og slíkt. Það fer alveg í mínar fínustu taugar þegar ég er spurð hvort ég sé að skúra hérna og síðan í öðru lagi hvort ég fái borgað fyrir þetta?? Come on, lít ég virkilega út fyrir að vera skúringakelling (sem ég var nb. í 4. bekk) og lít ég virkilega út fyrir að vera svo heimsk að gera þetta í sjálfboðavinnu?

Fordómarnir eru að sjálfsögðu mín megin því ég vil ekki vera flokkuð með skúringakonunum hérna í skólanum! Sömuleiðis vil ég ekki vera álitin smákrakki. Í gærkvöldi fór ég í sund og framvísaði sundkortinu mínu."Ertu fullorðin?" hreytti afgreiðslukonan í mig samstundis."Já" svaraði ég með alveg sama hroka og setti upp minn besta hneykslunarsvip! Hvaða máli skipti það hvort ég sé orðin fullorðin eða ekki, þegar ég framvísa fullorðins korti?

Úff, hvað manneskjan við hliðina á mér er með hrikalega mikið ilmvatn á sér


16:20// sigga | #

bad to the bone...
Já, ég er barasta óþekk stelpa. Búin að taka bannerinn aftur af!

15:01// sigga | #

18.3.01

afbrotamaður
Ætli það sé ekki best að kippa þessari auglýsingu aftur inn ef ske kynni að þeir hjá þrífæti myndu loka á mig líka eins og flesta aðra bloggera hjá þeim....

12:12// sigga | #

13.3.01

Women's history Month
Af hverju þurfa Bandaríkjamenn að hafa svona marga frídaga og allt verður að hafa eitthvað nafn, t.d. Black history month, Women's history month o.s.frv. Bara svona til þess að nefna dæmi þá er 1.mars St.David´s day, 19.febrúar er Washington's birthday, 12.febrúar er Lincoln's birthday. Ef við gerðum þetta þá væri 15.apríl Finnbogadóttir´s birthday og 14.maí Grímsson's birthday. Nei bara svona pæling sko!

Af hverju er síða ísfyglisins 6.síðan sem kemur upp í leitinni "Vigdís Finnbogadóttir" á leit.is?????


17:46// sigga | #

12.3.01

smá orðamistök
Þetta var reyndar Hrefnugata 5....

09:32// sigga | #

8.3.01

úff!
Mikið asskoti er erfitt að vera svona góð í Babe-Testinu! 100% í annað skipti á ævinni, VÁ!

18:20// sigga | #

6.3.01

skúbb
Ég er konan ykkar á götunni og færi ykkur fréttirnar jafn óðum og þær gerast! Fyrir nokkrum mínútum var Eiríkur Jónsson fréttamaður að keyra niður Snorrabraut og var hann með flottasta bumper stikkerinn sem ég hef séð:

REAL MEN LOVE JESUS

20:53// sigga | #

The Biscuit
Í fyrradag tók ég snilldarmyndina Ghostbusters II á leigu og tók eftir sottlu fyndnu. Það er leikarinn Peter MacNicol í aukahlutverki sem slysa-illmennið Janosz Poha en það er einmitt sá sami og The Biscuit í Ally Mcbeal....vitið þér enn?

 

16:53// sigga | #

skyndipróf
Akkúrat núna er ég í skyndiprófi. Það er ekki gaman að krossaprófum. Einhvern veginn tekst mér alltaf að klúðra öllum svörum sem api myndi krossa rétt við. Ég vil fá ritgerðaspurningar á ritgerðaspurningar ofan. Ég ætti kannski að athuga hvort heilinn á mér sé rétt tengdur? Ætli þeir geti tékkað á þessu á Smurstöðinni Klöpp?

11:28// sigga | #